11.02.09 - 11:02
Brynjar Ingi Erluson
Bobby Convey til San Jose Earthquakes (Staðfest)

Convey í leik gegn Manchester United

Mynd: Getty Images

Convey í leik gegn Manchester United

Mynd: Getty Images
Bandaríska knattspyrnufélagið San Jose Earthquakes sem leikur í MLS deildinni hefur fengið Bobby Convey til liðs við sig frá Reading.
Convey, sem er 25 ára gamall miðjumaður, hefur verið einn af lykilmönnum Reading undanfarin fjögur tímabil og átti stóran þátt í að koma liðinu upp í úrvalsdeildina árið 2006. Hann skoraði þá 8 mörk í 112 leikjum fyrir félagið.
Hann er því kominn aftur á heimaslóðir, en hann er bandarískur og lék áður fyrir D.C. United áður en hann fór til Reading.
,,Það er mjög sjaldgæft að fá bandarískann landsliðsmann sem er á toppi ferils síns,\" sagði John Doyle, framkvæmdarstjóri liðsins.
,,Þegar hann varð tiltækur á markaðnum þá stukkum við á það tækifæri að fá hann. Hann er er frábær sóknarsinnaður miðjumaður sem mun strax láta til sín taka og áhorfendur munu njóta þess að horfa á hann spila,\" sagði hann að lokum.

Heimild: Soccerway