Fotbolti.net
11.02.09 - 13:45
Magnús Már Einarsson

Guus Hiddink tekinn við Chelsea (Staðfest)

Guus Hiddink tekinn við Chelsea (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Guus Hiddink hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri Chelsea út þessa leiktíð en þetta staðfesti félagið í dag. Hiddink mun áfram að þjálfa rússneska landsliðið samhliða því að stýra Chelsea.
Þessi 62 ára gamli Hollendingur tekur við af Luiz Felipe Scolari sem var rekinn á mánudag.

Hiddink mun hitta leikmenn Chelsea í vikunni og hann mun síðan mæta á leik liðsins gegn Watford á laugardaginn.

Fyrsti leikur Chelsea undir stjórn HIddink verður gegn Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni þann 21.febrúar.

„Ég er að þessu til að hjálpa vini. Abramovich er að gera ótrúlega mikið fyrir rússneska knattspyrnu og ég vil endurgjalda honum það,“ sagði Hiddink við hollensku útvarpstöðina 538 fyrr í dag.

Hiddink hefur áður þjálfað landslið og félagslið á sínum tíma en þá stýrði hann PSV Eindhoven á sama tíma og landsliði Ástralíu.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.