Kobbie Mainoo, Antoine Semenyo, Brennan Johnson, Marcus Rashford og fleiri koma við sögu
   þri 11. febrúar 2020 22:33
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Dixon: Wilder efstur á lista þegar stjóri tímabilsins er valinn
Lee Dixon, fyrrum varnarmaður enska landsliðsins og Arsenal, finnst að Chris Wilder ætti að vera stjóri tímabilsins á Englandi.

Wilder, sem er 52 ára stjóri Sheffield United, hefur gert frábæra hluti með nýliðanna og situr liðið í fimmta sæti deildarinnar. Sheffield er einungis tveimur stigum á eftir Chelsea sem situr í Meistaradeildarsæti.

Dixon er á því að það sé hægt að færa rök fyrir því að afrek Wilder sé meira en afrek Jurgen Klopp sem er með Liverpool ósigrað og langefst í deildinni.

„Það má segja að Wilder sé að gera betri hluti en Jurgen Klopp. Það er ekki einungis úrslitin sem liðið hefur náð í heldur hvernig liðið hefur verið á leiktíðinni."

„Liðið er fullt af orku og stuðningsmenn vilja sjá viljann. Það er eins og andrúmsloftið í kringum liðið búi til viljuga knattspyrnumenn."

„Upplegg liðsins er eitthvað sem hefur komið á óvart og hvað hann nær úr liðinu. Það má segja að hann ætti að vera efstur á lista,"
sagði Dixon að lokum.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Man City 17 12 1 4 41 16 +25 37
2 Arsenal 16 11 3 2 30 10 +20 36
3 Aston Villa 16 10 3 3 25 17 +8 33
4 Chelsea 17 8 5 4 29 17 +12 29
5 Sunderland 17 7 6 4 19 17 +2 27
6 Crystal Palace 16 7 5 4 20 15 +5 26
7 Man Utd 16 7 5 4 30 26 +4 26
8 Liverpool 16 8 2 6 26 24 +2 26
9 Brighton 17 6 6 5 25 23 +2 24
10 Everton 16 7 3 6 18 19 -1 24
11 Newcastle 17 6 5 6 23 22 +1 23
12 Brentford 17 7 2 8 24 25 -1 23
13 Tottenham 16 6 4 6 25 21 +4 22
14 Bournemouth 17 5 7 5 26 29 -3 22
15 Fulham 16 6 2 8 23 26 -3 20
16 Nott. Forest 16 5 3 8 17 25 -8 18
17 Leeds 16 4 4 8 20 30 -10 16
18 West Ham 17 3 4 10 19 35 -16 13
19 Burnley 17 3 2 12 19 34 -15 11
20 Wolves 17 0 2 15 9 37 -28 2
Athugasemdir
banner