Möguleiki er á því að það komi yfirlýsing frá Nottingham Forest í fyrramálið eða á næstu dögum varðandi Sean Dyche. Staðan hans hjá félaginu er í mikilli hættu eftir markalaust jafntefli gegn Úlfunum í kvöld.
Fjallað var um það að staða Dyche væri ekki traust eftir tap gegn Leeds á dögunum og það var baulað eftir leikinn Wolves í kvöld. Þetta var kjörið tækifæri fyrir Forest að komast lengra frá fallsvæðinu en þeir nýttu sér það ekki.

BBC fjallar um það að stuðningsmenn Forest hafi baulað eftir leikinn og stjórnendur Forest geti nýtt tækifærið til að breyta um stjóra þar sem meira en vika er í næsta leik liðsins.
Dyche er þriðji stjóri Forest á tímabilinu en hann var ráðinn í október þegar Forest var tveimur stigum frá fallsæti. Hann hefur náð í 21 stig úr 17 leikjum og liðið er þremur stigum fyrir ofan fallsvæðið.
Nuno Espirito Santo var rekinn frá Forest eftir aðeins þrjár umferðir á þessu tímabili og Ange Postecoglou sem tók við af honum entist aðeins 39 daga í starfinu. Nuno stýrir nú West Ham og það yrði óþægileg staða fyrir stjórnendur Forest ef hann heldur Hömrunum uppi á kostnað Forest.
Athugasemdir