11.03.08 - 19:25
Hafliði Breiðfjörð
Viktor Bjarki Arnarsson í KR (Staðfest)

Viktor Bjarki leikur með KR í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hilmar Þór

Viktor Bjarki leikur með KR í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hilmar Þór
KR-ingar fengu í dag gífurlegan liðsstyrk þegar það var staðfest á vefsíðu félagsins að Viktor Bjarki Arnarsson hafi verið lánaður til félagsins frá Lilleström í Noregi en undir yfirlýsinguna skrifar Rúnar Kristinsson.
Viktor Bjarki lék síðast hér á landi sumarið 2006 er hann var í Víkingi. Hann átti frábært tímabil það árið með liðinu og var að tímabilinu loknu kjörinn leikmaður ársins í Landsbankadeild karla.
Samkvæmt vefsíðu KR mun hann koma hingað til lands í lok mars og hefja þá æfingar með KR-ingum en honum hefur gengið illa að fóta sig hjá Lilleström og varla spilað nema æfingaleiki með liðinu. Að stórum hluta hafa meiðsli spilað þar inní.
Viktor Bjarki er 25 ára gamall og tímabilið 2006 var hans besta í efstu deild. Hann lék þá 18 leiki og skoraði 8 mörk. Hann á að baki 49 leiki í efstu deild og hefur skorað 15 mörk í þeim, með Víkingi og Fylki. Auk þess hefur hann verið á mála hjá TOP Oss og Urecht í Hollandi.
Hjá KR hittir Viktor Bjarki fyrir Grétar Sigfinn Sigurðarson fyrrum félaga sinn hjá Víkingum sem einnig er mágur hans.

Heimild: KRReykjavik.is | Vefsíða KR