11.03.09 - 00:01
Hafliði Breiðfjörð
Donadoni tekinn við Napoli (Staðfest)

Roberto Donadoni.

Mynd: Getty Images

Roberto Donadoni.

Mynd: Getty Images
Roberto Donadoni hefur verið ráðinn þjálfari ítalska félagsins Napoli en þetta staðfesti félagið í kvöld eftir að hafa rekið Edy Reja fyrr í dag.
Donadoni hefur verið atvinnulaus síðan hann var rekinn úr starfi landsliðsþjálfara Ítalíu eftir vonbrigði á EM 2008 þar sem Ítalía féll úr keppni í fjórðungsúrslitunum fyrir Spánverjum sem á endnum unnu mótið.
Reja var við stjórn Napoli í fimm leiktíðir og kom liðinu úr þriðju deildinni í þá fyrstu. Á þessu tímabili byrjaði liðið vel og virtist stefna á Evrópusæti.
Liðið hefur hinsvegar hrapað niður töfluna undanfarna mánuði og tapað níu leikjum í röð. Reja var látinn fara þrátt fyrirr að Aurelio de Laurentiis forseti félagsins hafi nýlega sagt starf hans ekki í hættu.
Napoli er í 11. sæti 20 liða deildarinnar og fyrsti leikur Donadoni með liðið verður gegn Emil Hallfreðssyni og félögum í Reggina á sunnudag.

Heimild: AP