Liverpool með augastað á Diaby - Pocchetino á blaði hjá Real - Juventus hefur áhuga á Djed Spence
banner
   mið 11. mars 2026 08:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
FHL fær tvo bandaríska leikmenn (Staðfest)
Kvenaboltinn
Úr leik hjá FHL síðasta sumar.
Úr leik hjá FHL síðasta sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
FHL hefur samið við tvo bandaríska leikmenn fyrir komandi sumar í Lengjudeildinni.

Brooklyn Nelson kemur frá Utah í Bandaríkjunum. Síðustu ár hefur hún spilað með háskólaliði Georgia State Panthers en hún lauk háskólanámi þar síðastliðið vor. Hún spilaði stórt hlutverk hjá háskólaliðinu sínu og var til að mynda fyrirliði síðasta tímabil.

„Brooklyn er fjölhæfur miðjumaður með góða snerpu. Það verður gaman að fylgjast með Brook spila í Lengjudeildinni í sumar með FHL," segir í tilkynningu frá félaginu en hinn leikmaðurinn heitir Alexis Wright og kemur frá Atlanta í Georgíu.

Síðustu fjögur ár spilaði hún með háskólaliðinu UC Berkley. Alexis er öflugur framherji sem getur leyst fleiri en eina stöðu í sóknarlínunni. Á síðasta árinu sínu með UC Berkley var hún ein af lykilleikmönnum liðsins og næst markahæst í liðinu. Alexis hefur spilað með U20 landsliði Jamaíka.

FHL féll úr Bestu deildinni síðasta sumar en horfir eflaust í það að komast beint aftur upp.



Athugasemdir
banner
banner