Arsenal vill Brandt - Man Utd, Arsenal og Chelsea vilja Manzambi - Arsenal hefur ekki lengur áhuga á Tonali
   mið 11. mars 2026 15:18
Elvar Geir Magnússon
Sigurður Gunnar lánaður frá Stjörnunni í HK (Staðfest)
Lengjudeildin
Sigurður Gunnar Jónsson.
Sigurður Gunnar Jónsson.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Varnarmaðurinn Sigurður Gunnar Jónsson hefur verið lánaður frá Stjörnunni í HK fyrir komandi tímabil og mun því spila í Kópavoginum þetta árið.

„Markmiðið er að Sigurður fái stöðugan spiltíma og haldi áfram þróun á sínum knattspyrnuferli. Við óskum Sigurði góðs gengis og hlökkum til fylgjast með honum á næsta tímabili," segir í tilkynningu Stjörnunnar.

Sigurður Gunnar er 21 árs varnarmaður sem lék 13 leiki með Stjörnunni í Bestu deild karla í fyrra og 10 árið þar á undan. Fyrri hluta tímabilsins 2024 var hann á láni hjá Leikni.

HK fór í úrslitaleik umspils Lengjudeildarinnar á síðasta ári þar sem liðið tapaði illa fyrir Keflavík og verður því áfram í Lengjudeildinni á komandi sumri.
Athugasemdir
banner
banner