Fotbolti.net
11.04.06 - 14:59
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Ricardo Oliveira til Sao Paulo (Staðfest)

Vonast til að vera í landsliðshópi Brasilíu í sumar

Vonast til að vera í landsliðshópi Brasilíu í sumar

Canon

Mynd: Getty Images

Brasilíski sóknarmaðurinn Ricardo Oliveira, sem hefur verið frá í tæpa fimm mánuði vegna meiðsla, samþykkti í dag að ganga til liðs við Sao Paulo í heimalandi sínu á fjögurra mánaða lánssamningi. Oliveira gat valið á milli Santos og Sao Paulo en valdi Sao Paulo þrátt fyrir að hafa spilað með fyrrnefnda liðinu áður en hann fór til Spánar.
,,Ég verð í Brasilíu til 10. ágúst og mun síðan snúa aftur til æfinga hjá Betis tveimur dögum seinna. Ég kann vel við mig hérna og langar að klára samning minn hjá liðinu sem er til 2011 og kannski framlengja hann til 2015 ef þeir vilja. Þetta er síðasta tækifærið mitt til að sanna fyrir (Carlos Alberto) Parreira að ég get verið í hópnum á heimsmeistaramótinu í sumar,” sagði Oliveira í dag.

Llorenc Serra Ferrer, þjálfari Betis, hefur sagt að hann vilji hafa Oliveira, sem var markahæsti leikmaður Betis á síðasta tímabili með 22 mörk, í hópnum sínum á næsta tímabili. Oliveira var hluti af brasilíska landsliðinu sem vann Copa America árið 2004 og Álfukeppnina árið 2005.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.