Fotbolti.net
11.04.07 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Stoichkov tekur við Celta Vigo (Staðfest)

Stoichkov tekur við Celta Vigo (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Hristo Stoichkov var í gær ráðinn þjálfari Celta Vigo en hann tekur við þjálfarastarfinu af Fernando Vazquez sem var rekinn á mánudagskvöldið.
Stoichkov sem var á sínum tíma framherji Barcelona hætti í gær sem þjálfari búlgarska landsliðsins eins og við höfum greint frá en hann hafði þjálfað landsliðið frá árinu 2004.

Honum bíður hörð fallbarátta hjá Celta Vigo en liðið sem tapaði 4-2 gegn Recreativo Huelva um helgina er núna í 18.sæti með 27 stig þegar að níu umferðir eru eftir í La Liga.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.