Fotbolti.net
11.05.07 - 10:21
Magnús Már Einarsson

Jens Elvar til Fjarðabyggðar á láni (Staðfest)

Jens Elvar til Fjarðabyggðar á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

Fjarðabyggð úr fyrstu deildinni hefur fengið varnarmanninn Jens Elvar Sævarsson að láni frá Fylki og gildir samningurinn í mánuð til að byrja með.
Jens sem er 26 ára getur spilað bæði í bakverði og í miðverði en hann æfði með dönskum liðum í vetur. Á síðustu leiktíð lék hann ellefu leiki með Fylki í Landsbankadeildinni.

Hann gekk til liðs við Fylki fyrir síðasta tímabil en hann kom frá Þrótti þar sem hann er uppalinn. Hann skoraði meðal annars tvö mörk í fimmtán leikjum fyrir síðarnefnda félagið í Landsbankadeildinni árið 2005.

Jens hefur þegar fengið leikheimild með Fjarðabyggð og getur hann því leikið með liðinu í fyrstu umferð fyrstu deilarinnar á sunnudaginn þar sem liðið mætir hans gömlu félögum í Þrótti.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.