Fotbolti.net
11.05.07 - 15:05
Magnús Már Einarsson

Baldur Þórólfs og Kristinn Geir lánaðir til Völsungs (Staðfest)

Baldur Þórólfsson.

Baldur Þórólfsson.

Canon

Mynd: Úr einkasafni

Völsungur úr annarri deild hefur fengið liðsstyrk en varnarmaðurinn Baldur Þórólfsson og markvörðurinn Kristinn Geir Guðmundsson hafa gengið til liðs við félagið á láni þar til 10.júní næstkomandi.
Baldur er 21 árs varnarmaður en hann lék einn leik með Val í fyrra, gegn Bröndby í Evrópukeppni Félagsliða. Kristinn Geir sem er markvörður er 26 ára en hann á alls fimm leiki að baki í efstu deild.

Björn Hákon Sveinsson sem hefur varið mark Völsungs undanfarin ár er í skóla í Danmörku og er hann ekki væntanlegur fyrr en í júní og því hefur félagið fengið Kristinn.

Bæði Baldur og Kristinn hafa fengið leikheimild með Völsungi og verða þeir því með liðinu gegn Aftureldingu í fystu umferðinni í annarri deildinni á sunnudag.

Heimild: 123.is/volsungur

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.