11.05.07 - 15:27
Magnús Már Einarsson
Selfyssingar fá enskan miðjumann (Staðfest)


Mynd: Jón Halldór


Mynd: Jón Halldór
Enskur miðjumaður að nafni Carl Clampitt hefur gengið til liðs við Selfyssinga úr annarri deild. Carl hóf feril sinn hjá Akademíunni í Liverpool en meiðsli settu strik í reikninginn.
Hann fór til Hearts í Skotlandi og síðan til Shrewsbury Town og Marine áður en hann fór til Cammel Laird þar sem hann var lykilmaður í vetur.
Carl þekkir Andy Pew leikmann Selfyssinga en þessi 23 ára leikmaður er kominn með leikheimild og getur hann leikið með liðinu gegn Sindra í fyrstu umferðinni í annarri deildinni á sunnudaginn.
Carl þekkir Andy Pew leikmann Selfyssinga en þessi 23 ára leikmaður er kominn með leikheimild og getur hann leikið með liðinu gegn Sindra í fyrstu umferðinni í annarri deildinni á sunnudaginn.
Heimild: Heimasíða Selfyssinga
