Fotbolti.net
11.05.07 - 20:22
Magnús Már Einarsson

Árni Guðna og Tómas Agnars í Reyni á láni (Staðfest)

Árni Freyr Guðnason (til vinstri).

Árni Freyr Guðnason (til vinstri).

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Reynir Sandgerði úr fyrstu deild hefur fengið Árna Frey Guðnason að láni frá FH og Tómas Agnarsson að láni frá KR en þetta staðfesti Jakob Már Jónharðsson annar þjálfara Reynis við Fótbolti.net í kvöld.
Árni Freyr sem fór í vetur til Fremad Aarhus í Danmörku verður 21 árs á morgun. Á síðustu leiktíð lék hann þrjá leiki í Landsbankadeildinni með FH.

Tómas er varnarmaður á tvítugsaldri en hann var þrívegis í leikmannahópi KR í Landsbankadeildinni í fyrra.

Að sögn Jakobs verða bæði Árni Freyr og Tómas með Reyni þegar að liðið mætir Fjölni í fyrstu umferð fyrstu deildarinnar á mánudag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.