Fotbolti.net
11.05.08 - 14:45
Hörður Snævar Jónsson

Oliver Jaeger í KS/Leiftur (Staðfest)

Jaeger í leik með HK á síðustu leiktíð.

Jaeger í leik með HK á síðustu leiktíð.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

KS/Leiftur hefur samið við svissneska framherjann Oliver Jaeger en hann hefur verið að æfa með liðinu um helgina. Þetta staðfesti Brynjar Harðarson framkvæmdarstjóri KS/Leiftur í samtali við Fótbolta.net.
Jaeger lék með HK á síðustu leiktíð en félagið ákvað að framlengja ekki samning sinn við hann.

Jaeger kom við sögu í 14 leikjum í Landsbankadeildinni í fyrra og skoraði í þeim tvö mörk.

Hann hefur í vetur verið að æfa með Víking Reykjavík, Víking Ólafsvík, KA og Grindavík en þau ákváðu að semja ekki við hann.

Þetta er annar leikmaðurinn sem KS/Leiftur fær á einni viku en liðið fékk Róbert Örn Óskarsson á láni frá FH fyrir nokkrum dögum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.