Varnarmaðurinn Andri Steinn Ingvarsson er búinn að skrifa undir lánssamning við KÁ og mun leika með liðinu í 3. deildinni í sumar.
KÁ hefur byrjað deildartímabilið á tveimur tapleikjum og gæti Andri Steinn reynst mikilvægur hlekkur í varnarleiknum. Andri er fæddur 2006 og er með tvo landsleiki að baki fyrir U16 lið Íslands.
Hann á 69 leiki að baki fyrir meistaraflokk Hauka og er samningsbundinn félaginu út keppnistímabilið 2028.
„Við bjóðum Andra Stein hjartanlega velkominn í KÁ og hlökkum til að sjá hann í bláu á Ásvöllum!"
29.09.2025 17:30
Kom vel inn í lið Hauka og skiptir alfarið til félagsins (Staðfest)


