11.06.07 - 13:28
Arnar Geir Halldórsson
Sunderland kaupir Halford frá Reading (Staðfest)

Halford í baráttu við Ricardo Rocha

Mynd: Getty Images

Halford í baráttu við Ricardo Rocha

Mynd: Getty Images
Nýliðar Sunderland gengu frá kaupum á Greg Halford nú í dag en hann kemur frá Reading fyrir 3,5 milljónir punda.
Halford sem er 22 ára hægri bakvörður stóðst læknisskoðun í dag og er fyrstu kaup Roy Keane þetta sumarið.
Halford náði ekki að festa sig í sessi hjá Reading en hann kom til liðsins í janúar frá Colchester og spilaði einungis þrjá leiki fyrir félagið.
Roy Keane er mikill aðdáandi kappans en hann er síður en svo hættur á leikmannamarkaðnum og er búist við að nokkur ný andlit mæti á leikvang ljóssins í sumar.

Heimild: Sky