Fotbolti.net
11.06.11 - 10:15
Jóhann Óli Eiðsson

Yohan Cabaye til Newcastle (Staðfest)

Yohan Cabaye til Newcastle (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Yohan Cabaye er formlega genginn til liðs við Newcastle. Cabaye skrifaði undir fimm ára samning en hann kemur frá Frakklandsmeisturum Lille á 4,3 milljónir punda.
Cabaye, sem er 25 ára franskur miðjumaður, hefur leikið allan sinn feril með Lille en ákvað að nú væri kominn tími til að fá nýja áskorun.

,,Þetta er frábært fyrir mig sem leikmann,\" sagði leikmaðurinn á heimasíðu Newcastle. ,,Það hefur verið frábært að vera hjá Lille en mig hefur alltaf langað til að spreyta mig á meðal þeirra bestu og ég tel að nú sé rétti tíminn til þess og Newcastle rétti staðurinn til þess.\"

,,Fyrstu kynni mín af Englandi eru góð. Borgin er fín, klúbburinn lítur vel út og völlurinn er frábær. Ég hlakka til að vinna með Alan Pardew og sýna stuðningsmönnunum hvað ég get,\"
sagði Cabaye að lokum.

,,Ég er afar ánægður með að hafa nælt í hann,\" sagði Alan Pardew. ,,Hann hefur sannað sig í Frakklandi, bæði með Lille og landsliðinu og nú er komið að því að sanna sig í Englandi.\"

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.