Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
   fim 11. júní 2026 17:34
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hjörtur færir sig um set í sumar (Staðfest)
Mynd: Mummi Lú
Landsliðsmaðurinn Hjörtur Hermannson verður ekki áfram hjá gríska félaginu Volos þegar samningur hans við félagið rennur út í lok mánaðar.

Hjörtur er 31 árs varnarmaður sem gekk í raðir félagsins í janúar í fyrra þegar hann kom frá Carrarese.

Ekki er ljóst hvar hann spilar á næsta tímabili, en hann er nú með lausan samning. Hann er uppalinn hjá Fylki og hefur á ferlinum verið hjá PSV, Gautaborg, Bröndby, Pisa, Carrarese og nú síðast Volos.

Hann á að baki 31 landsleik, kom við sögu í báðum leikjunum í nýliðnu verkefni.

Hjörtur var byrjunarliðsmaður í liði Volos á tímabilinu sem endaði í 8. sæti grísku úrvalsdeildarinnar.
Slapp
banner