Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
   fim 11. júní 2026 19:31
Brynjar Ingi Erluson
Senesi kallaður inn í argentínska landsliðið
Mynd: EPA
Argentínski miðvörðurinn Marcos Senesi heur verið kallaður inn í argentínska landsliðið í stað Leo Balerdi. Þetta staðfestir argentínska fótboltasambandið í dag.

Balerdi var að glíma við meiðsli og neyddist því til að draga sig út úr hópnum.

Hann náði ekki leiknum gegn Íslandi, en Senesi var ekki kallaður inn í hóp Argentínu fyrr en eftir þann leik.

Það hefur nú fengist staðfest og ljóst er að hann verður með á HM.

Geggjuð vika hjá Senesi, sem var að ganga í raðir Tottenham frá Bournemouth og fær nú að upplifa drauminn um að fara á heimsmeistaramót.

Senesi er 29 ára gamall og hefur spilað frábærlega með Bournemouth síðustu ár. Hann á þrjá A-landsleiki með Argentínu, en lék sinn fyrsta landsleik árið 2022.



Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner
banner
banner