11.07.07 - 11:36
Hörður Snævar Jónsson
Emil Hallfreðsson til Lyn (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Emil Hallfreðsson leikmaður íslenska landsliðsins hefur gengið til liðs við norska liðið Lyn en frá þessu er greint á heimasíðu Lyn. Emil mun hefja æfingar með Lyn í dag. Eins og flestir vita var Emil á mála hjá Tottenham.
Emil sem uppalinn FH-ingur fór frá félaginu árið 2005 og gekk í raðir Tottenham þar sem hann fékk ekki sénsa til að sanna sig. Hann var svo á síðustu leiktíð á láni hjá sænska liðinu Malmö.
,,Þetta var mjög áhugavert tilboð og ég talaði við Indriða Sigurðsson og hann sagði mér það jákvæða um félagið," sagði Emil Hallfreðsson við heimasíðu Lyn.
,,Þetta var mjög áhugavert tilboð og ég talaði við Indriða Sigurðsson og hann sagði mér það jákvæða um félagið," sagði Emil Hallfreðsson við heimasíðu Lyn.
Heimild: Heimasíða Lyn
