11.07.07 - 13:26
Hörður Snævar Jónsson
Nugent til Portsmouth (Staðfest) (Uppfært)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
David Nugent hefur skrifað undir samning við Portsmouth og verður hann kynntur á blaðamannafundi á Fratton Park í dag. Félögin tvö hafa komist að samkomulagi um kaupverðið sem er talið vera í kringum 6 milljónir punda. Þessi 22 ára gamli leikmaður mun skrifa undir fjögurra ára samning við Portsmouth.
,,Ég held að hann eigi skilið tækifæri á hæsta stigi, ég er ánægður með að fá hann. Ég held að David muni eiga gott tímabil fyrir okkur. Ef hann kemst í gírinn munum við verða ánægðir," sagði Harry Redknapp stjóri Portsmouth.
Harry Redknapp stjóri Portsmouth hefur verið duglegur við að kaupa leikmenn í sumar og hefur nælt sér í þá, Sylvain Distin, Hermann Hreiðarsson, Sulley Muntari, Martin Cranie og Arnold Mvuemba.
Harry Redknapp stjóri Portsmouth hefur verið duglegur við að kaupa leikmenn í sumar og hefur nælt sér í þá, Sylvain Distin, Hermann Hreiðarsson, Sulley Muntari, Martin Cranie og Arnold Mvuemba.
Heimild: BBC
