11.07.09 - 11:21
Hafliði Breiðfjörð
Chris Mavinga til Liverpool (Staðfest) El Zhar framlengir

Nabil El Zhar.

Mynd: Getty Images

Nabil El Zhar.

Mynd: Getty Images
Liverpool staðfesti í morgun að félagið hafi keypt franska vinstri bakvörðinn Chris Mavinga frá Paris St Germain í Frakklandi.
Mavinga sem er 18 ára gamall getur líka spilað sem miðvörður. Hann hefur verið í U18 ára landsliði Frakka. Hann kemur í kjölfar David Ngog sem kom til félagsins frá Paris St. Germain síðasta sumar.
Liverpool staðfesti einnig í morgunað Morokkóbúinn Nabil El Zhar hafi framlengt samningi sínum við félagið til ársins 2012.
El Zhar sem er 22 ára gamall lék 19 leiki með Liverpool á síðustu leiktíð. Hann kemur í kjölfar Steven Gerrard, Fernando Torres, Dirk Kuyt, Yossi Benayoun og Daniel Agger sem hafa framlengt samninga sínum.
El Zhar hafði komið til Liverpool frá Saint Etienne í október 2006. Hann er fæddur í Frakklandi og spilaði með unglingaliðum Frakka áður en hann ákvað að spila fyrir landslið Morokkó en þaðan eru foreldrar hans.

Heimild: Vefur Liverpool (1) | Vefur Liverpool (2)