11.07.09 - 17:25
Davíð Örn Atlason
Fraizer Campbell til Sunderland (Staðfest)

Campbell sést hér fagna með Gareth Bale.

Mynd: Getty Images

Steve Bruce nýr knattspyrnustjóri í dag keypti í dag sinn fyrsta leikmann síðan að hann tók við liðinu, en það var Fraizer Campbell frá Manchester United.
Campbell sem er 21 árs stóðst læknisskoðun og hefur nú skrifað undir fjögurra ára samning við Sunderland.
Sunderland borguðu 3,5 milljónir punda fyrir leikmanninn, en upphæðin getur orðið allt af sex milljónir punda.
Campbell var á láni hjá Tottenham á síðasta tímabili, en hann var partur af kaupunum á Dimitar Berbatov til United frá Tottenham.
Campbell var einnig á láni hjá Hull tímabilið 2007/08 og menn héldu að hann væri á leið til Hull eftir að United samþykkti tilboð í leikmanninn en Sunderland hefur nú klófest leikmanninn.

Heimild: Heimasíða Sunderland