Fotbolti.net
11.07.09 - 20:04
Hafliði Breiðfjörð

Edda og Ólína næstu tvö árin hjá KIF Örebro (Staðfest)

Ólína G. Viðarsdóttir og Edda Garðarsdóttir verða áfram í herbúðum KIF Örebro.

Ólína G. Viðarsdóttir og Edda Garðarsdóttir verða áfram í herbúðum KIF Örebro.

Canon

Mynd: Guðmundur Svansson

Kvennaboltinn
Landsliðskonurnar Edda Garðarsdóttir og Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir verða út þetta tímabil og tvö ár til viðbótar hjá sænska félaginu KIF Örebro en þetta staðfesti Edda við Fótbolta.net í dag.
Þær hafa nú skrifað undir samning þessa efnis við sænska félagið sem þær hafa leikið með síðan fyrr á árinu þegar tímabilið hófst í Svíþjóð.

Edda og Ólína hafa átt fast sæti í liði KIF Örebro allt tímabilið. Edda hefur leikið alla 15 deildarleiki liðsins á miðjunni og skorað í þeim þrjú mörk.

Ólína hefur leikið ýmsar stöður á vellinum hjá liðinu en þó oftast sem bakvörður. Hún hefur leikið 14 af 15 leikjum.

Báðar komu þær til félagsins frá KR þar sem þær höfðu leikið undanfarin ár. Fréttir höfðu borist af því fyrr í mánuðinum að þær gætu þurft að hætta um mánaðarmótin vegna skattamála tengdum samningum þeirra en það var strax borið til baka og svo endanlega núna með þessum nýja tveggja ára samningi.

Edda og Ólína eru báðar lykilmenn og byrjunarliðsmenn í íslenska landsliðinu sem tekur þátt í Evrópumóti landsliða í Finnlandi 23. ágúst - 10. september næstkomandi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.