Fotbolti.net
11.07.11 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

Lee Bowyer til Ipswich (Staðfest)

Lee Bowyer er kominn til Ipswich.

Lee Bowyer er kominn til Ipswich.

Canon

Mynd: Getty Images

Miðjumaðurinn Lee Bowyer er genginn til liðs við Ipswich Town en hann kemur frítt til félagsins frá Birmingham eftir að samningur hans rann út.
Bowyer sem er 34 ára gamall á að baki yfir 600 leiki með Charlton, Leeds, Newcastle og West Ham auk Birmingham. Hann gerir eins árs samning við Ipswich.

,,Ég hlakka til að reyna að koma Ipswich aftur í úrvalsdeildina,\" sagði Bowyer við þetta tilefni.

Auk hans hefur félagið fengið þá Michael Chopra, Nathan Ellington og Ívar Ingimarsson í sumar.

,,Við erum auðvitað hástánægðir með að hafa samið við leikmann sem er eins góður og Lee er,\" sagði Paul Jewell stjóri Ipswich. ,,Allir sem hafa séð Lee spila í gegnum árin vita að hann er sigurvegari og hann kemur með þetta sigurhugarfar í búningsklefann.\"

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.