11.07.11 - 07:40
Magnús Már Einarsson
Ze Roberto til Katar (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

Brasilíski leikmaðurinn Ze Roberto hefur yfirgefið Hamburg í Þýskalandi og gengið til liðs við Al-Gharafa í Katar.
Þessi 37 ára gamli leikmaður skrifaði undir tveggja ára samning við lið Al-Gharafa.
Ze Roberto hefur leikið 336 leiki í þýsku Bundesligunni með FC Bayern, Bayer Leverkusen og Hamburg en hann er leikjahæsti erlendi leikmaðurinn í deildinni frá upphafi.
Hjá Al-Gharafa fær hann það hlutverk að leysa landa sinn Juninho af hólmi.
Hinn 36 ára gamli Juninho hefur leikið með Al-Gharafa síðustu tvö tímabil en þessi mikli aukaspyrnusérfræðingur er á leið til Vasco da Gama í heimalandinu.

Heimild: AFP