Fotbolti.net
11.07.11 - 15:00
Magnús Már Einarsson

Jonathan Woodgate til Stoke (Staðfest)

Jonathan Woodgate til Stoke (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Stoke City hefur gert eins árs samning við varnarmanninn Jonathan Woodgate en hann kemur frítt til félagsins frá Tottenham.

Þessi 31 árs gamli leikmaður hefur verið mikið frá keppni vegna meiðsla undanfarin ár en hann gerði samning við Stoke sem er þannig að hann fær borgað fyrir hvern spilaðan leik.
,,Strákurinn er toppleikmaður og það vita allir að hann hefur átt í vandræðum með meiðsli,\" sagði Tony Pulis stjóri Stoke.

,,Við höfum hins vegar trú á að því að hann muni spila leiki með okkur ef við pössum vel upp á hann.\"

,,Við vitum að önnur félög í ensku úrvalsdeildinni höfðu áhuga á Jonathan svo við erum ánægðir með að hann valdi okkur.\"

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.