11.07.11 - 18:45
Magnús Már Einarsson
Ragnar Hauksson í Þór (Staðfest)

Mynd: Þór

Mynd: Þór
Þórsarar hafa samið við framherjann reynda Ragnar Hauksson en hann kemur til félagsins frá KF.
Þessi 35 ára gamli leikmaður verður kominn með leikheimild þegar Þór fær Keflavík í heimasókn á Þórsvöll eftir viku.

Ragnar hefur lengst af leikið á Siglufirði en í fyrra lék hann einnig síðari hluta tímabilsins með Dalvík/Reyni. Ragnar lék einnig þrjú tímabil með ÍA í efstu deild samtals 38 leiki og í þeim skoraði hann 13 mörk.
Ragnar hefur skorað sex mörk í níu leikjum með KF í annarri deildinni í sumar en hann skoraði jöfnunarmark liðsins gegn Hetti í fyrradag eftir að hafa komið inn á sem varamaður.
Þórsarar gætu einnig verið að fá frekari liðsstyrk en 22 ára gamall örfættur miðjumaður frá Bretandi er á reynslu hjá liðinu þessa dagana.

Heimild: Heimasíða Þórs