Fotbolti.net
11.07.11 - 18:51
Elvar Geir Magnússon

Zoran Miljkovic tekinn við Leikni (Staðfest)

Zoran Miljkovic tekinn við Leikni (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Zoran Miljkovic hefur skrifað undir samning við Leikni og er nýr þjálfari liðsins. Hann er þessa stundina að stýra sinni fyrstu æfingu hjá liðinu.
Hann fær stuttan undirbúning fyrir fyrsta leik en Leiknir leikur við topplið 1. deildarinnar, ÍA, á Skaganum á morgun. Zoran lék á sínum tíma með ÍA.

„Leiknismenn hafa mikla trú á að þessi ráðning verði félaginu til heilla og gengi félagsins batni á þessari leiktíð,\" segir á heimasíðu Leiknis.

Þá hefur það verið staðfest að Gunnar Einarsson, sem var spilandi aðstoðarþjálfari Leiknis, er hættur hjá félaginu. Leiknir vonaðist til þess að Gunnar myndi klára tímabilið með liðinu en hann ákvað að víkja.

Leiknir hefur enn ekki unnið leik á tímabilinu og berst fyrir lífi sínu í 1. deildinni eftir að hafa verið hársbreidd frá því að komast upp í Pepsi-deildina í fyrra.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.