Fotbolti.net
11.08.06 - 07:39
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Man Utd lánar Foster til Watford á ný (Staðfest)

Ben Foster spilar sitt annað tímabil í röð með Watford

Ben Foster spilar sitt annað tímabil í röð með Watford

Canon

Mynd: Getty Images

Markvörðurinn Ben Foster hefur gengið til liðs við Watford á árs löngum samningi í annað sinn frá Manchester United.
Þessi 23 ára gamli Englendingur stóð sig frábærlega er Watford komst upp í úrvalsdeildina á síðasta tímabili og komst meðal annars á biðlista hjá landsliðinu fyrir HM í sumar.

,,Ég var í skýjunum þegar ég fékk símtalið um að ég gæti komið og skrifað undir alla pappírana. Núna hlakkar mér til næsta ársins í úrvalsdeildinni með Watford,” sagði Foster sem gæti spilað gegn Chievo á sunnudaginn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.