Fotbolti.net
11.08.06 - 16:02
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Ítalska deildin

Sam Dalla Bona til Napoli (Staðfest)

Dalla Bona í leik með Chelsea á sínum tíma

Dalla Bona í leik með Chelsea á sínum tíma

Canon

Mynd: Getty Images

Napoli hafa gengið frá kaupunum á miðjumanninum Samuele Dalla Bona frá AC Milan á frjálsri sölu.
Þessi fyrrum leikmaður Chelsea, sem var á síðasta tímabili á láni hjá Sampdoria, skrifaði undir fjögurra ára samning við Napoli í dag.

Napoli snéru sér að Dalla Bona eftir að þeim mistókst að krækja í Gennaro Delvecchio, leikmann Sampdoria.

Dalla Bona hefur samtals spilað 88 leiki í Serie A og skorað í þeim níu mörk. Þá spilaði hann einnig 55 leiki fyrir Chelsea þar sem hann skoraði sjö mörk auk þess að hafa spilað með öllum unglingalandsleikjum Ítalíu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.