11.08.07 - 06:00
Sindri Þór Þorgeirsson
Martin til Manchester City (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Sven Göran Eriksson nýr stjóri Manchester City fékk í gær til sín markmanninn Richard Martin en hann var samningslaus. Martin skrifar undir eins mánaðar samning við félagið.
Martin sem er 19 ára hefur æft með City undanfarnar vikur og spilaði með þeim æfingaleik gegn Accrington Stanley um síðustu helgi. Hann var áður á mála hjá enska liðinu Brighton en hann var leystur undan samningi fyrr í sumar.
Eriksson hefur verið að leita að markmanni síðan Andreas Isaksson aðalmarkvörður félagsins meiddist í æfingaleik fyrir stuttu en hann verður líklega frá í sex vikur.
Þó er nokkuð ljóst að Martin er ekki keyptur til að leysa markmannsvandamál liðsins, heldur er hann aðeins keyptur til að auka breiddina. Fyrir hjá liðinu eru þeir Kasper Schmeichel og Joe Hart.
Fyrsti úrvalsdeildarleikur City undir stjórn Eriksson verður í dag þegar þeir mæta Íslendingaliðinu West Ham á Upton Park í Lundúnum og mun einhver þessarra þriggja markvarða þurfa að verja markið þar.

Heimild: BBC