Fotbolti.net
11.08.07 - 06:00
Sindri Þór Þorgeirsson

Väyrynen til Derby County (Staðfest)

Derby fá liðsstyrk

Derby fá liðsstyrk

Canon

Mynd: Getty Images

Derby County hafa fest kaup á finnska landsliðsmanninum Mika Väyrynen frá hollenska meisturunum í PSV, en þetta staðfesti Peter Gadsby eigandi liðsins í gærkvöldi.
Väyrynen sem er 25 ára miðjumaður, spilaði sinn fyrsta landsleik í mars árið 2002 og hefur leikið 23 leiki með finnska landsliðinu og skorað í þeim tvö mörk. Hann kom til PSV frá Heerenveen árið 2005 og hefur verið lykilmaður í liði þeirra síðan.

Hann á aðeins eftir að standast læknisskoðun hjá félaginu en það er aðeins talið formsatriði, Peter Gadsby eigandi liðsins var ánægður með kaupin.

,,Mika Väyrynen, hann er landsliðsmaður, miðjumaður, og spilar fyrir PSV Eindhoven. Skilmálar hafa verið samþykktir, hann á aðeins eftir læknisskoðun, og við erum hæstánægðir," sagði Gadsby við fjölmiðla í gærkvöldi

Derby eru nýliðar í úrvalsdeildinni og þeir spila sinn fyrsta leik +i dag þegar þeir fá Portsmouth í heimsókn á Pride Park.

Heimild: Sky Sports

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.