11.08.11 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Arda Turan til Atletico Madrid (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Atletico Madrid hefur keypt miðjumanninn Arda Turan frá Galatasaray á tólf milljónir evra.
Turan var fyrirliði Galatasaray en hann mun skrifa undir fjögurra ára samning við Atletico.
Turan skoraði alls 45 mörk í 184 leikjum með Galatasaray en hann var tvívegis tyrkneskur meistari með félaginu.

Að auki hefur Turan skorað níu mörk í 45 landsleikjum með Tyrkjum en hann var meðal annars í liðinu sem komst í undanúrslit á EM 2008.
Heimild: AP