11.08.11 - 09:24
Alexander Freyr Tamimi
Matt Derbyshire í Nottingham Forest (Staðfest)

Derbyshire er hér í baráttunni við Grétar Rafn Steinsson í fyrra.

Mynd: Getty Images

Derbyshire er hér í baráttunni við Grétar Rafn Steinsson í fyrra.

Mynd: Getty Images
Nottingham Forest hefur gengið frá kaupunum á framherjanum Matt Derbyshire frá Olympiakos og skrifaði hann undir þriggja ára samning við félagið.
Derbyshire hefur verið á miklu flakki undanfarin ár, en hann var á síðasta tímabili á láni hjá Birmingham og hafði verið orðaður við endurkomu til Englands.
Hann staðfesti svo á Twitter síðu sinni að hann hefði skrifað undir samning hjá Nottingham Forest.
,,Ég vil bara segja að ég er mjög spenntur að spila fyrir Nottinham Forest í ár, ég skrifaði undir þriggja ára samning. Þetta verður frábært tímabil,\" sagði Derbyshire í gær.

Heimild: Sky