Fotbolti.net
11.08.11 - 18:02
Hörður Snævar Jónsson

Bruno Perone til QPR (Staðfest)

Bruno Perone til QPR (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

QPR hefur gengið frá samningi við Bruno Perone varnarmann frá Brasilíu svo lengi sem hann fái atvinnuleyfi.
Þessi 24 ára gamli leikmaður getur einnig leikið sem miðjumaður.

Hann skrifaði undir eins árs samning en hann hefur æft með liðinu á undirbúningstímabilinu.

,,Bruno hefur komist vel inn í hlutina á þeim tíma sem hann hefur verið,\" sagði Neil Warnock stjóri QPR.

,,Hann gerði vel á undirbúningstímabilinu, hann á margt eftir ólært en með tíð og tíma held ég að hann nýtist okkur.\"

Heimild: Sporting Life

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.