11.08.11 - 16:21
Magnús Már Einarsson
Hannes Þ. Sigurðsson til Rússlands (Staðfest)

Hannes fagnar marki með FH í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hannes fagnar marki með FH í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hannes Þ. Sigurðsson, framherji FH, hefur samið við rússneska félagið Spartak Nal\'chik en hann mun halda utan á laugardaginn.
Hannes gerði samning fram að áramótum til að byrja með en Spartak Nal\'chik er sem stendur í næstneðsta sæti í rússnesku úrvalsdeildinni.

,,Ég vildi hafa þessa lengd á samninginn og þeir samþykktu það þó að þeir hafi viljað hafa hann lengri,\" sagði Hannes við Fótbolta.net í dag.
,,Mér finnst gott að hafa þetta svona því þá hefur maður tíma til að kynnast þessu, læra almennilega á þetta og sjá betur hvað maður er að fara út í.\"
Hannes fór til Spartak Nal\'chik á dögunum þar sem hann skoðaði aðstæður en hann verður fyrsti Íslendingurinn til að leika í rússnesku deildinni.
Hannes fór út í atvinnumennsku árið 2002 en þessi 28 ára gamli leikmaður samdi síðan við uppeldisfélag sitt FH í vor.
Hjá FH spilaði Hannes alls tólf leiki í Pepsi-deildinni og skoraði í þeim þrjú mörk.
Hannes gæti leikið sinn fyrsta leik í Rússlandi þegar Spartak Nal\'chik fær Spartak Moskvu í heimsókn um aðra helgi.