Fotbolti.net
11.08.11 - 17:38
Alexander Freyr Tamimi

Tuncay Sanli til Bolton (Staðfest)

Tuncay er mættur til Bolton.

Tuncay er mættur til Bolton.

Canon

Mynd: Getty Images

Grétar Rafn Steinsson og félagar hans í Bolton hafa fengið til sín góðan liðsstyrk í formi Tuncay Sanli, sem kemur á láni út tímabilið frá Wolfsburg í Þýskalandi.
Grétar Rafn verður ekki fyrsti íslenski liðsfélagi Tuncay, en hann var ásamt Eiði Smára Guðjohnsen í liði Stoke í fyrra en fékk ekki að spila mikið frekar en íslenski landsliðsmaðurinn.

Þessi tyrkneski landsliðsmaður hefur áður leikið með liði Middlesbrough þar sem hann var lykilmaður. Hann hefur leikið 80 leiki með A-landsliði Tyrklands og þykir einn af þeirra fremri knattspyrnumönnum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.