Fotbolti.net
11.11.06 - 14:38
Magnús Már Einarsson

Óðinn Árnason í Fram (Staðfest)

Óðinn Árnason í Fram (Staðfest)
Canon

Mynd: fram.is

Varnarmaðurinn Óðinn Árnason gerði í dag samning við Fram en hann getur leikið bæði hægri bakvörð og miðvörð. Óðinn kemur frá Grindavík þar sem hann hefur leikið undanfarin ár.
Óðinn kom til Grindvíkinga frá Þór árið 2003 og hefur staðið sig vel undanfarin ár. Í sumar lék hann sautján leiki í Landsbankadeildinni og alls hefur hann leikið 69 leiki í deildinni.

Hann er annar varnarmaðurinn sem gengur í raðir Fram eftir að tímabilinu lauk því Reynir Leósson kom frá Trelleborg í Svíþjóð. Fyrir hafa Framarar tvo aðra miðverði, þá Eggert Stefánsson og Kristján Hauksson en Þjóðverjinn Frank Posch ákvað að fara frá liðinu til Stjörnunnar í vikunni.

Þá hafa Framarar gert fyrsta stigs samning við Þóri Guðjónsson efnilegan fimmtán ára leikmann í þriðja flokki félagsins. Fyrsta stigs samningar sem þessi eru hugsaðir fyrir yngri leikmenn sem Fram telur framtíðar menn félagsins segir á heimasíðu félagsins.

Heimild: Heimasíða Fram

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.