Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 11. nóvember 2019 09:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Leikmenn Macclesfield í verkfalli
Töpuðu gegn liði úr sjöundu efstu deild
Mynd: Getty Images
Enska D-deildarfélagið Macclesfield féll úr enska FA-bikarnum í gær gegn Kingstonian úr sjöundu efstu deild. Leikurinn endaði með 4-0 sigri Kingstonian.

Sex leikmenn úr unglingaliðinu og fimm leikmenn sem eru í láni spiluðu fyrir Macclesfield í gær, en aðalliðshópurinn er í verkfalli vegna ógreiddra launa.

Margir stuðningsmenn Macclesfield sniðgengu leikinn og mótmæltu þess í stað eigandanum óvinsæla, Amar Alkadhi.

Sol Campbell og Hermann Hreiðarsson þjálfuðu Macclesfield um skeið, en þeir hættu fyrr á þessari leiktíð vegna fjárhagsvandræða og svikinna loforða.

Campbell og Hermann þjálfa nú saman Southend í ensku C-deildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner