Fotbolti.net
12.01.07 - 12:49
Magnús Már Einarsson

Árni Freyr Guðnason lánaður til Fremad Aarhus (Staðfest)

Árni (til vinstri) eftir að FH-ingar urðu Íslandsmeistarar.

Árni (til vinstri) eftir að FH-ingar urðu Íslandsmeistarar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Árni Freyr Guðnason miðjumaður FH hefur verið lánaður til Aarhus-Fremad sem leikur í næstefstu deild í Danmörku en þetta staðfesti hann við Fótbolti.net í dag. Hann mun vera í Danmörku þar til í lok júní þegar að danska tímabilið klárast.
Árni sem er tvítugur fer til danska liðsins fyrir tilstuðlan varnarmannsins Peter Matzen sem var í röðum FH á síðasta tímabili. Matzen gat lítið leikið með FH vegna nárameiðsla, sem eru ennþá að hrjá hann en hann hefur einnig gengið til liðs við Aarhus-Fremad.

Á síðustu leiktíð lék Árni þrjá leiki í Landsbankadeildinni með FH en árið 2005 lék hann sinn fyrsta mótsleik, er hann spilaði í VISA-bikarnum.

Aarhus-Fremad er í 14.sæti í dönsku 1.deildinni með fjórtán stig eftir fimmtán leiki en 16 lið leika í deildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.