Fotbolti.net
12.01.08 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

Wilson Palacios til Wigan (Staðfest)

Wilson Palacios í leik með Birmingham.

Wilson Palacios í leik með Birmingham.

Canon

Mynd: Getty Images

Wigan hafa gengið frá kaupum á Wilson Palacios landsliðsmanni Honduras. Palacios sem er 23 ára gamall er keyptur frá Deportivo Olimpia í Honduras en hefur leikið undanfarið hálft ár með Birmingham þar sem hann var á láni.
Steve Bruce nýráðinn stjóri Wigan fékk hann einmitt til Birmingham er hann var þar og er því að fá hann í annað sinn á tímabilinu í sínar raðir. Palacios gerir þriggja og hálfs árs samning við Wigan.

Hann hafði leikið sex leiki með Birmingham er hann var þar en á þeim tíma lenti hann í því að bróður hans var rænt í heimalandinu og mannræningjarnir hafa ekki enn sleppt honum úr haldi sínu.

,,Ég þekki Wilson vel og hef séð hvað hann getur gert," sagði Steve Bruce í gær á vefsíðu Wigan.

,,Ég hef sagt alveg síðan ég kom til félagsins að ég vilji bara fá leikmenn inn sem myndu bæta hópinn og koma með eitthvað nýtt."

,,Hann hefur styrk og yfirsýn, hann getur sent boltann með báðum fótum og hann hefur haft tíma til að aðlagast hörkunni í úrvalsdeildinni."

Palacios á að baki 42 landsleiki fyrir Honduras. Hann fer beint í leikmannahóp Wigan sem mætir Derby í dag.

,,Ég er mjög ánægður með að hafa samið við Wigan," sagði Palacios.

,,Mér líkar vel við Steve sem stjóra og mér finnst þetta metnaðarfullt félag sem er að fara að ná árangri. Ég get ekki beðið eftir að byrja. Þegar láninu lauk hjá Birmingham var Wigan fyrsta félagið til að koma og gera mér tilboð og núna vil ég einbeita mér á að gera mitt besta hérna."

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.