12.01.09 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Kevin-Prince Boateng til Dortmund á láni (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Kevin-Prince Boateng miðjumaður Tottenham hefur gengið til liðs við Borussia Dortmund á láni út tímabilið.
Boateng kom til Tottenham frá Hertha Berlin sumarið 2007 en hefur átt erfitt uppdráttar í Englandi.
Þessi 21 árs gamli leikmaður fékk lítið að spila undir stjórn Juande Ramos og um tíma leit út fyrir að hann myndi yfirgefa Tottenham í sumar.
Boateng hefur leikið tvo leiki síðan að Harry Redknapp tók við stjórnvölunum hjá Tottenham en nú mun leikmaðurinn fara til Þýskalands í von um að fá að spila meira.

Heimild: Sky