12.01.09 - 18:41
Magnús Már Einarsson
Blackburn kaupir framherja frá Macclesfield (Staðfest)

Allardyce er farinn að láta til sín taka hjá Blackburn.

Mynd: Getty Images

Allardyce er farinn að láta til sín taka hjá Blackburn.

Mynd: Getty Images
Blackburn Rovers hefur fest kaup á Nick Blackman framherja Macclesfield.
Blackman, sem er 19 ára, æfði með Blackburn fyrr í vikunni og heillaði forráðamenn félagsins það mikið að hann hefur nú skrifað undir tveggja og hálfs ára samning.
Sam Allardyce stjóri Blackburn hefur einnig fengið Marc Zorro varnarmann Benfica á reynslu en hann mun æfa með liðinu næstu dagana.
Þá er líklegt að Blackburn muni fá Gael Givet varnarmann Marseille á láni á næstu dögum.

Heimild: BBC