12.02.09 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Ragnar Heimir Gunnarsson í Fjölni (Staðfest)

Ragnar í leik með Fjölni sumarið 2007.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ragnar í leik með Fjölni sumarið 2007.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ragnar Heimir Gunnarsson hefur gengið að nýju til liðs við Fjölni eftir að hafa leikið með Hvöt í annarri deildinni síðastliðið sumar.
Ragnar, sem er varnar og miðjumaður, hjálpaði Fjölni að komast upp úr fyrstu deildinni árið 2007 en gekk síðastliðinn vetur til liðs við Hvöt.
Hann skoraði þrjú mörk í þrettán leikjum í annarri deildinni síðastliðið sumar áður en hann hélt erlendis til náms.
Þessi 25 ára gamli leikmaður er hins vegar kominn aftur til Íslands og hefur hann æft með Fjölni undanfarið.
Ragnar hefur ekki verið löglegur með liðinu í Reykjavíkurmótinu en hann hefur nú fengið félagaskipti og getur því leikið með Fjölni gegn Fylki í undanúrslitum mótsins í kvöld.