12.03.07 - 16:30
Guðmundur Dagur Ólafsson
Southend fær Lloyd Sam frá Charlton á láni (Staðfest)

Sam í leik með Charlton fyrr á tímabilinu

Mynd: Getty Images

Southend United, sem leikur í ensku Championship deildinni (næstefstu deild), hefur fengið vængmanninn Lloyd Sam að láni frá Charlton til loka þessa keppnistímabils.
Hinn 22 ára gamli Sam skrifaði undir nýjan samning við Charlton til ársins 2010 í byrjun tímabilsins en eftir að stjórskipti urðu hjá félaginu þá hefur hann dottið neðar í goggunarröðinni.
Fyrr á tímabilinu var hann sendur til Sheffield Wednesday á láni en það leikur einning í Championship deildinni. Hann spilaði 4 leiki fyrir liðið. Þá fór hann á láni til Leyton Orient árið 2004 en Sam er fyrrum leikmaður U-20 ára landsliðs Englands.
Southend er sem stendur í næst neðsta sæti Championship deildarinnar og er að berjast fyrir lífi sínu í deildinni þegar níu leikir eru eftir. Mikil spenna er á botni deildarinnar en aðeins fjögur stig skilja að liðin í 24. og neðsta sæti og liðinu í því nítjánda.

Heimild: BBC