Fotbolti.net
12.03.07 - 21:14
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Chris Dickson til Charlton (Staðfest)

Chris Dickson til Charlton (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Charlton hefur gengið frá kaupunum á hinum 22 ára gamla Chris Dickson eftir að hann hreif Alan Pardew á reynslutímanum sínum.
Charlton samþykkti að borga 50 þúsund pund fyrir Dickson sem kemur frá utandeildarfélaginu Dulwich Hamlet en hann skrifaði undir tveggja og hálfs árs samning.

,,Það er eins og draumur að ganga til liðs við Úrvalsdeildarfélag. Það er stórt skref fyrir mig en ég hef alltaf verið leikmaður með sjálfstraust,” sagði Dickson.

,,Ég gerði mitt besta til að standa mig í varaliðsleiknum og mér fannst ég nýta það. Það er skömm að ég get ekki spilað fyrr en á næsta tímabili en ég verð bara að einbeita mér að því að eiga gott undirbúningstímabilinu.”

Dickson er önnur kaup Pardew í þessari viku eftir að hann fékk einnig til sín danska kantmanninn Martin Christensen.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.