Fotbolti.net
12.03.08 - 15:49
Magnús Már Einarsson

Ragnar Heimir, Gillzenegger og þrír aðrir í Hvöt (Staðfest)

Ragnar Heimir Gunnarsson er farinn í Hvöt.

Ragnar Heimir Gunnarsson er farinn í Hvöt.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hvöt úr annarri deild hefur fengið fimm nýja leikmenn til liðs við sig en þar á meðal eru Ragnar Heimir Gunnarsson sem lék með Fjölni síðastliðið sumar og Egill Einarsson, betur þekktur sem Gillzenegger.
Einnig hefur Sigmar Ingi SIgurðssoon markvörður úr ÍH gengið til liðs við Hvöt sem og Bjarni Pálmason frá Hömrunum og Hjalti Guðmundsson frá Snerti.

Leikmennirnir ættu allir að fá leikheimild fyrir helgi sem þýðir að þeir geti leikið sinn fyrsta mótsleik með Hvöt á sunnudag þegar að liðið leikur gegn Aftureldingu í Lengjubikarnum.

Ragnar Heimir mun án efa styrkja Hvatarmenn mikið en hann lék vel með Fjölni í fyrstu deildinni síðastliðið sumar og skoraði eitt mark í sautján leikjum.

Þessi varnar og miðjumaður, sem er uppalinn hjá Breiðablik, getur ekki leikið með Fjölni í sumar þar sem hann stefnir á að halda til Danmerkur í ágúst næstkomandi þar sem hann verður í námi.

Ragnar mun byrja að spila með Hvöt í Lengjubikarnum en Kristján Óli Sigurðsson þjálfari liðsins vonast til að halda honum lengur hjá félaginu.

,,Hann ætlar að byrja að taka Lengjubikarinn og svo er ég vongóður um að hann hafi áhuga að að spila með okkur þangað til hann fer út í ágúst, sérstaklega þar sem hann Ágúst Ágústsson og Sigurjón Jónsson eru miklir félgar og þá langar að spila saman í sumar," sagði Kristján Óli við Fótbolta.net í dag.

,,Þetta er gríðarlegur styrkur þar sem hann getur spilað allar stöður á vellinum og er einn ósérhlífnasti leikmaður sem ég hef spilað með. Hann gefur okkur breidd í mörgum stöðum"

Egill Einarsson eða Gillzenegger lék síðast í deilarkeppni 2005 þegar hann skoraði tvö mörk í sjö leikjum með ÍH í þriðju deildinni. Gillzenegger leikur í stöðu framherja og Kristján Óli er ánægður með að fá hann í Hvöt.

,,Það eru ágætis líkur á því að hann verði með okkur í sumar, hann er baneitraður markaskorari sem veit nákvæmlega hvar markið er og þar fyrir utan er hann hrikalega hraustur og hleypur 100 metrana á 11 sekúndum," sagði Kristján Óli.

Sigmar Ingi varði mark ÍH á síðustu leiktíð en hann hefur einnig leikið með Breiðablik. Nezir Ohran varði mark Hvatar með prýði á síðustu leiktíð og hann verður væntanlega áfram aðalmarkvörður liðsins.

,,Sigmar er fyrst og fremst hugsaður sem varaskeifa fyrir Nezir ef hann skyldi meiðast eða fara í bann. Það er nauðsynlegt að hafa 2 markmenn í hverju liði og Sigmar er hörkumarkmaður með fína reynslu."

Bjarni Pálmason hefur æft og leikið æfingaleiki með Hvöt undanfarið. Þessi knái sóknarmaður skoraði sextán mörk í þrettán leikjum með Hömrunum í þriðju deild á síðsutu leiktíð en áður var hann á mála hjá KA þar sem hann lék meðal annars í fyrstu deildinni.

,,Bjarni er striker sem er gríðarlega markheppinn og líkamlega sterkur. Hann er búinn að spila með okkur í æfingaleikjunum og er búinn að skora 2-3 mörk í hverjum einasta leik og verður okkur gríðarlega mikilvægur í sumar og verður án efa með markahærri mönnum í deildinni," sagði Kristján Óli.

Hann er einnig ánægður með komu Hjalta til Hvatar. Hjalti lék síðast með Snerti en hann hefur einnig leikið með Hömrunum og KA hér á landi.

,,Hjalti er varnarmaður sem getur bæði spilað hafsent og vinstri bakvörð, Hann er naut að burðum og hefur gríðarlega öflugan vinstri fót og eykur breiddina í vörnni til mikilla muna."

Hvatarmenn komust upp í aðra deild síðastliðið haust en liðið ætlar að styrkja sig ennþá frekar fyrir átökin í sumar.

,,Við erum ekkert hættir að fá leikmenn það er á hreinu. Það kemur í ljós fljótlega hvaða menn það verða," sagði Kristján Óli að lokum við Fótbolta.net.
Egill

Egill

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Dagur Ólafsson

Sigmar Ingi Sigurðsson.

Sigmar Ingi Sigurðsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.