12.03.09 - 15:16
Magnús Már Einarsson
Edilon og Pétur Már í Gróttu (Staðfest)

Edilon Hreinsson.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Grótta hefur fengið Edilon Hreinsson til liðs við sig frá Haukum og þá hefur sóknarmaðurinn Pétur Már Harðarson einnig komið aftur til félagsins frá KR.
Edilon, er þrítugur varnar og miðjumaður, en hann hefur leikið með Haukum frá árinu 2003. Í fyrra skoraði hann tvö mörk í átján leikjum í fyrstu deildinni með liðinu.
Edilon er uppalinn í KR en hann hefur einnig leikið með Þrótti og Fram hér á landi.
Pétur Már verður tvítugur á þessu ári en hann er uppalinn í Gróttu. Undanfarin tvö ár hefur hann hins vegar leikið með KR.
Einnig hafa tveir ungir leikmenn, Ari Elísson og Óli Andri Hermansson, komið til Gróttu frá Fram. Ari er markvörður en Óli Andri er örvfættur varnarmaður.

Heimild: Heimasíða Gróttu